Þýskaland, sagan – Kolin út 2038
Grein/Linkur: Þjóðverjar ætla að losa sig við kol fyrir árið 2038
Höfundur: Kjartan Kjartansson Vísir
.
.
Janúar 2020
Þjóðverjar ætla að losa sig við kol fyrir árið 2038
Ríkisstjórn Þýskalands og sambandslandsstjórnir þar hafa sammælst um að taka kolaorkuver landsins úr notkun fyrir árið 2038. Sambandslönd sem hafa fram að þessu reitt sig á kolanámur og orkuver eiga að fá 40 milljónir evra, jafnvirði tæpra 5.500 milljarð íslenskra króna, í skaðabætur samkvæmt áætluninni.
Bruni á kolum er ein helsta uppspretta gróðurhúsalofttegunda sem valda loftslagsbreytingum. Með áætlun þýskra stjórnvalda gæti bruni á brúnkolum, mest mengandi tegund kola, verið bannaður þegar árið 2035, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Þýskir ríkisdagurinn þarf að samþykkja frumvarp þess efnis síðar á þessu ári.
Skaðabæturnar fara til fjögurra sambandslanda: Saxlands-Anhalt, Saxlands, Norðurrín-Vestfalíu og Brandenborgar. Þeim á að verja í uppbyggingu innviða og endurmenntun fyrrum starfsmanna í kolaiðnaðinum. Kolanámur og orkuver fá einnig bætur vegna minnkandi framleiðslu.
Um þriðjungur af raforku í Þýskalandi er framleiddur með bruna á kolum en helmingur þeirra er brúnkol. Þjóðverjar eru jafnframt stærstu framleiðendur brúnkola í heiminum og bera ábyrgð á 44% brúnkolanotkunar í Evrópu.
Þjóðverjar stefna á að framleiða 65% raforku með endurnýjanlegum orkugjöfum fyrir árið 2030.