Gaussin vetnistrukkur – Dakarrallið Sádi-Arabíu
Grein/Linkur: Fyrsti vetnisknúni trukkurinn til að keppa í Dakar-rallinu verður Gaussin
Höfundur: Hörður Kristjánsson
.
.
Janúar 2022
Fyrsti vetnisknúni trukkurinn til að keppa í Dakar-rallinu verður Gaussin
Franski vinnuvélaframleiðandinn Gaussin afhjúpaði í nóvember síðastliðnum H2 keppnistrukk, sem er fyrsta vetnisknúna farartæki heims sem hannað er til að keppa í Dakar-rallinu í Sádi-Arabíu árið 2022.
Þetta er flutningabíll sem mun keppa í akstri yfir sandöldurnar til að sýna fram á getu vetnisknúins rafmagnsbíls sem er búinn efnarafal sem umbreytir vetni í raforku fyrir mótorana.
H2 keppnisbíllinn er fyrsta gerðin í nýju línu vörubíla frá Gaussin sem er mengunarlaus og 100 prósent vetnisrafbíll. Hann á að koma á markað árið 2022. Hönnun bílsins var þróuð af hinu virta ítalska fyrirtæki Pininfarina. Vörubíllinn er tilbúinn til að þola allar erfiðar aðstæður sem eyðimörkin býður upp á.
Búinn tveimur 402 hestafla mótorum
H2 kappakstursbíllinn verður knúinn tveimur rafmótorum sem munu skila 402 hestöflum hvor (300 kW). Efnarafallinn sem umbreytir vetninu getur framleitt 510 hö (380 kW) og eru vetnistankar fyrir 80 af eldsneyti.
Bíllinn verður einnig búinn 82 kWh rafhlöðu sem á að nýtast í eyðimerkurkappakstrinum. Þá verður aksturshraðinn takmarkaður við 140 km á klukkustund til að uppfylla Dakar reglur.
Vetniskerfi bílsins er hannað fyrir ofurléttan undirvagn og hægt verður að fylla á vetnistankana á innan við 20 mínútum. Þá á bíllinn að komast allt að 400 km á einni tankfyllingu.
Gaussin-liðið þróaði kappakstursbílinn á aðeins ári. Teymið tókst á við tæknilegar áskoranir vetnisknúins bíls. Var efnarafall prófaður við erfiðar aðstæður sem gengu lengra en staðlaðar kröfur framleiðenda gerir við hönnun vörubíla fyrir vegarekstur.
Reynslan úr Dakar-rallinu nýtt við frekari þróun
Frammistöðugögn, sem safnað er í Dakar rallinu á næsta ári, munu hjálpa til við þróun á vörubíl fyrirtækisins sem á að frumsýna nú á árinu 2022.
Gaussin ætlar að setja á markað fjögur önnur afbrigði af mengunarlausa vörubílnum. Það er dráttarbíll, sjálfstýrður vörubíll, einn sendibíll og verktakabíll. Öll uppbygging og hönnun nýju ökutækjanna mun taka mið af tæknikröfum sem tengjast vetni og rafdrifnum bílum.