Kolefnisbinding jarðvegs – Fræðilegar upplýsingar, vottaðar aðferðir

Grein/Linkur:  Vottuð kolefnisbinding jarðvegs

Höfundur: Björn Bjarnason

Heimild:

.

Desember 2021

Vottuð kolefnisbinding jarðvegs

Björn Bjarnason

Landbúnaðarstefnan Ræktum Ísland! verður lögð til grundvallar samkvæmt nýbirtum stjórnarsáttmála þegar alþingi tekur af skarið um inntak landbúnaðarstefnu í fyrsta sinn í sögunni.

Hér hefur oftar en einu sinni verið hvatt til þess að í umræðum um kolefnisjöfnun og bindingu kolefnis sé þess gætt að um alþjóðlega vottaðar einingar sé að ræða. Það beri að gæta sín á þeim sem bjóði heimatilbúnar lausnir, reistar á eigin mati á ágæti þeirra, mati sem enginn annar viðurkennir í raun. Í heimi alþjóðaviðskipta ræður gæðavottun úrslitum um markaðs- og samkeppnisstöðu.

Landbúnaðarstefnan Ræktum Ísland! verður lögð til grundvallar samkvæmt nýbirtum stjórnarsáttmála þegar alþingi tekur af skarið um inntak landbúnaðarstefnu í fyrsta sinn í sögunni. Á fundum um Ræktum Ísland! um land allt var hvatt til þess að bændur gerðu kröfu um alþjóðlega vottun í viðskiptum um kolefniseiningar. Virk þátttaka bænda og kolefnisbúskapar setur æ stærri svip á framkvæmd grænnar stefnu. Á það var bent í þessu sambandi að nauðsynlegt væri fyrir Votlendissjóð að styðjast við annað en eigin vottun þegar hann stofnaði til viðskipta við landeigendur.

RaekiÍ ljósi þessa var ánægjulegt að lesa grein eftir Einar Bárðarson, framkvæmdastjóra Votlendissjóðs, í Fréttablaðinu 30. nóvember undir fyrirsögninni: Vottuð kolefnisjöfnun. Þar segir:

„Ábyrg kolefnisjöfnun er grundvallarþáttur í heildstæðri loftslagsstefnu og hluti af vegferðinni að kolefnishlutleysi. Vottun kolefniseininga er ein helsta forsenda þess að hægt sé að nota þær á ábyrgan hátt til kolefnisjöfnunar; kerfið í heild þarf að vera óháð bæði seljendum og kaupendum og viðmiðin þurfa að samræmast alþjóðlega viðurkenndri aðferðafræði. […]

Stjórn Votlendissjóðs hefur frá áramótum unnið að því að skoða og meta stöðu sjóðsins gagnvart alþjóðlegri vottun á kolefniseiningum sem verða til við endurheimt votlendis á vegum Votlendissjóðs. […]Markmið vinnunnar er að innan fárra missera geti Votlendissjóður boðið íslenskum fyrirtækjum og fyrirtækjum á alþjóðamarkaði vottaðar einingar sem nota má til kolefnisjöfnunar.“

Þeir sem vinna að markmiðum Votlendissjóðs eiga náið samstarf við Landgræðsluna. Í dag klukkan 15.00 verður streymt á vegum hennar fyrirlestri Jóhanns Þórssonar faglega teymisstjóra jarðvegs og loftslags hjá Landgræðslunni um jarðveginn sem næststærsta kolefnisforðabúr jarðarinnar, ástand íslensks jarðvegs. Kynnir hann tölur um mat á losun frá röskuðu landi, bæði frá votlendi sem og frá þurrlendi.

Á COP26 í Skotlandi var áréttað að vernd og endurheimt vistkerfa, ásamt vernd líffræðilegrar fjölbreytni væru mikilvægar aðgerðir til að ná markmiðum loftslagssamningsins. Landgræðslan bendir á að hér sé bágt ástand vistkerfa gríðarlega stór þáttur í loftslagsáherslum landsins. Vernd og endurheimt vistkerfa séu því eitt af meginmarkmiðum aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum. Ástand vistkerfa, þá sérstaklega jarðvegsins, skipti líka öllu máli eigi að ná settu marki um kolefnishlutlaust Ísland fyrir 2040.

Sókn í þessum anda einkennir stefnuna Ræktum Ísland! Það er til mikils að vinna að fræðilegar upplýsingar og vottaðar aðferðir séu kynntar sem best.

Fleira áhugavert: