Loftræstikerfi, Orkumerkingar – Einátta, tvíátta
Grein/Linkur: Loftræstikerfi fyrir íbúðarhúsnæði
Höfundur: Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun
.
.
September 2019
Loftræstikerfi fyrir íbúðarhúsnæði
Æskilegur orkunýtniflokkur: A+ eða A
Staðsetning orkumerkingar: Á framhlið tækisins þannig að merkimiðinn sjáist greinilega.
Orkumerkingar loftræstikerfa
Orkumerkingin sýnir hversu orkunýtið kerfið er á kvarðanum A+ til G. Orkunýtnustu kerfin eru merkt A+.
Merkimiði fyrir einátta loftræstikerfi sem eru sett á markað eftir 1. janúar 2016
Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram á merkimiðanum:
- Nafn eða vörumerki birgis.
- Tegundarauðkenni..
- Orkunýtniflokkur.
- Hljóðstyrkur í dB.
- Hámarksloftstreymi í m3 á klukkustund ásamt einni ör sem táknar einátta loftræstikerfi.
Merkimiði fyrir tvíátta loftræstikerfi sem eru sett á markað eftir 1. janúar 2016
Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram á merkimiðanum:
I. Nafn eða vörumerki birgis.
II. Tegundarauðkenni.
III. Orkunýtniflokkur.
IV. Hljóðstyrkur í dB.
V. Hámarksloftstreymi í m3 á klukkustund ásamt tveimur örvum sem vísa í gagnstæðar áttir og tákna tvíátta loftræstikerfi.
Einátta og tvíátta loftræstikerfi
Einátta loftræstikerfi er blæs lofti einungis í eina átt, annað hvort innanfrá og út (fráloft) eða utanfrá og inn (aðloft), þar sem hið vélvirka loftstreymi er jafnað með náttúrulegu aðlofti eða frálofti. Einátta kerfi sem notar meira en 30 vött fellur undir reglugerð um orkumerkingar.
Tvíátta loftræstikerfi blæs lofti innanfrá og út og utanfrá og inn og bæði búið frálofts- og aðloftsviftum.