Fráveituhreinsun – Úr 72-74%, 2010-2014
.
Nóvember 2017
Fjórðungur skólps fer óhreinsaður í sjóinn
„Þetta er bara sorglegt. Þetta er raunveruleikinn í dag að hafið er náttúrulega stútfullt af drasli,“ segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir, sérfræðingur hjá Matís.
Í september kom út skýrsla Umhverfisstofnunar um Stöðu fráveitumála á Íslandi á árunum 2010-2014. Það er að segja, úttekt á því hvernig sveitarfélögin í landinu standa að skólpmálum. Í stuttu máli mætti segja að staðan sé ekkert sérstaklega góð.
Tryggvi Þórðarson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun og einn skýrsluhöfunda, segir stöðuna lítið hafa batnað.
„Það er einn mælikvarði þarna í skýrslunni sem hefur verið notaður í fyrri skýrslum. Það er fjöldi íbúa landsins sem er tengdur einhvers konar hreinsun, skólphreinsun, hvort sem hún er í lagi eða ekki og þetta hefur aukist um 2%. Úr 72% í 74% á þessum fjórum árum.“