Breiðamýri Álftanesi – 252 íbúðahverfi
.
Apríl 2020
Nýtt íbúðahverfi mun rísa á Álftanesi
Framkvæmdir við uppbyggingu fjöl- býlishúsabyggðar í Breiðamýri á Álftanesi eru komnar af stað.
Garðabær hefur gert verksamning við verktakafyrirtækið Loftorku ehf. um gatnagerðarframkvæmdir í kjölfar útboðs sem nýverið fór fram.
Af því tilefni komu bæjarstjóri, bæjarfulltrúar og embættismenn á tækni- og umhverfissviði Garðabæjar saman á staðnum ásamt fulltrúum verktakans til að fagna þessum merka áfanga, segir í frétt á heimasíðu Garðabæjar.
Í lok janúar voru lóðir við Breiðamýri auglýstar til sölu og nú standa yfir viðræður við þá aðila sem hafa boðið í allar lóðirnar. Samkvæmt deiliskipulagi munu allt að 252 íbúðir verða byggðar í Breiðamýri við þrjár götur sem hafa hlotið heitið Hestamýri, Grásteinsmýri og Lambamýri.
Við hverja götu verða þrjár fjölbýlishúsasamstæður á 2-3 hæðum með íbúðum sem munu allar liggja að opnum grænum svæðum sem teygja sig inn á milli húsanna. Eftir miðju svæðinu mun renna lækur á milli grunnra settjarna þangað sem ofanvatni verður beint með sjálfbærum lausnum.
.