Fráveitulagnir – Skúringamoppa og vörubílsstrappi!

Heimild:

.

Desember 2017

Skúringamoppa og vörubílsstrappi í skólpið!

Við vorum aðeins í vandræðum með lokur í dælustöð við Digranesgötu, sem dælir skólpi í nýju hreinsistöðina sem verið er að taka í gagnið í Borgarnesi,“ segir í tilkynningu frá Veitum á Facebook síðu fyrirtækisins. „Ástæðan? Jú, einhverjum hefur tekist að koma moppu niður um klósettið hjá sér og annar sturtaði niður vörubílsstrappa.“ Bent er á að ekkert á að fara í fráveitulagnir nema líkamlegur úrgangur og klósettpappír. „Vinnum saman að því að hafa þennan mikilvæga þátt samfélagsins, sem góð fráveita er, í lagi.“

Fleira áhugavert: