WC – Saga, merking skammstöfunnar
eftir
Vatnsidnadur
·
desember 2, 2019
Heimild:
.
Júlí 2005
Af hverju eru salerni merkt með stöfunum WC?
Skammstöfunin WC stendur fyrir water closet ‘vatnssalerni’. Closet er notað í fleiri en einni merkingu:
- fataskápur, fataherbergi
- lítið herbergi notað til hvíldar eða til þess að draga sig í hlé.
Orðið er skylt latnesku sögninni claudo ‘ég loka, læsi’ en af henni er dregið nafnorðið claustrum ‘læstur staður’. Fyrr á tímum, þegar útikamrar voru mjög algengir, þótti mikil framför þegar tekið var að leiða vatn inn á slíka staði og síðar í salerni í húsum.
Slík salerni voru þá greind frá öðrum með því að taka fram að þau væru með vatni, water closet, síðar stytt í WC. Á íslensku var farið að notað orðið vatnssalerni um aldamótin 1900.
Tags: KlósettMerking WCSalerniwater closetwc
Fleira áhugavert: