Vatn og hreinlæti – Fræðsla
.
Vatn og hreinlæti
Mikill árangur hefur náðst á undanförnum árum við að tryggja börnum hreint drykkjarvatn og hreinlætisaðstöðu. Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun voru sett árið 2000. Eitt markmiðanna var að árið 2015 skuli hlutfall þeirra jarðarbúa sem ekki hafa aðgang að hreinu vatni hafa lækkað um helming frá 1990. Þetta markmið náðist árið 2012!
Hreint vatn er réttur barna!
Fræðsla bjargar mannslífum
Áhersla er meðal annars lögð á að tryggja samfélögum og skólum hreinlætisaðstöðu og veita fræðslu um hreinlætisvenjur. Börn hljóta fræðslu um mikilvægi handþvottar eftir salernisferðir og áður en matvæli eru handleikin og fara með þann fróðleik inn á heimili sín. Þannig hefur fræðslan margfeldisáhrif út í samfélagið.
Brunnar og salerni, bæði er mikilvægt!
UNICEF trúir því að það sé réttur allra heimsins barna að njóta góðrar heilsu. Hreint vatn og hreinlæti skiptir sköpum við að forðast sjúkdóma, sýkingar og þá skerðingu á lífsgæðum sem slíku fylgir. Með því að tryggja börnum drykkjarhæft vatn er lagður grunnur að betra lífi fyrir þau og fjölskyldur þeirra.
Hjálpaðu okkur að berjast fyrir réttindum barna
UNICEF nýtur mikils trausts og leggur áherslu á víðtæka samvinnu við yfirvöld, félagasamtök, samfélög og börnin sjálf. Við gegnum leiðandi hlutverki í hjálparstarfi fyrir börn og erum því í einstakri stöðu til að þrýsta á um stórfelldar breytingar sem hafa áhrif á heimsvísu. Í öllu okkar starfi treystum við eingöngu á frjáls framlög. Mánaðarlegar gjafir heimsforeldra gera UNICEF kleift að bregðast samstundis við þegar neyðarástand brýst út, vera áfram til staðar fyrir börn eftir að kastljós fjölmiðla er farið annað, sinna hjálparstarfi á svæðum sem njóta engrar fjölmiðlaathygli, skipuleggja hjálparstarf yfir lengri tíma og beita sér á heimsvísu. Með þinni hjálp vinnum við að því að gæta allra barna.