Útsýnispallur Bolafjalli – 2021, 160 M.kr.
.
Október 2019
Útsýnispallurinn verður klár 2021
Fjögur tilboð bárust í smíði og uppsetningu útsýnispalls á Bolafjalli við Bolungarvík. Áætlaður kostnaður við verkið er 193 milljónir króna. Ístak hf. var með hæsta tilboðið eða rúmar 276 milljónir króna sem er ríflega 80 milljónum yfir kostnaðaráætlun. Þetta kemur fram á vef Bolungarvíkur.
Næst hæsta tilboðið var frá köfunarþjónustunni. Hin tvö, Eykt hf. og Þotan ehf. voru með lægra tilboð en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Áætluð verklok eru eftir þrjú ár eða 15. október 2021.
Útsýnispallurinn mun slúta fram yfir brún Bolafjalls sem er 638 metra hátt fjall beint upp af Bolungarvík. Á fjallinu er ratsjárstöð sem Landhelgisgæslan rekur. Þegar stöðin var byggð var lagður þangað ágætur vegur, nokkuð brattur, sem aðeins er opinn yfir hásumarið.
Í samtali við Morgunblaðið fyrir sléttu ári greindi Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri í Bolungarvíkur, að eftirspurn er eftir meiri áfangastað á þessum stað. „Það er ekki síst vegna þess mikla útsýnis sem er af fjallinu, bæði yfir Ísafjarðardjúp og Bolungarvík,“ segir hann.
Vefur Bolungarvíkur:
Tilboð í útsýnispall á Bolafjalli opnuð
Í dag voru tilboð í smíði og uppsetningu útsýnispalls á Bolafjalli opnuð í Ráðhúsi Bolungarvíkur.
Fjögur tilboð bárust:
- 276.046.782 kr. – Ístak hf.
- 197.725.738 kr. – Köfunarþjónustan ehf.
- 158.505.000 kr. – Eykt ehf.
- 169.315.966 kr. – Þotan ehf.
Kostnaðaráætlun er 193.000.000 kr.
Meðal helstu verkþátta eru:
- Borun og festing bergbolta.
- Smíði og uppsetning stálvirkis.
- Frágangur yfirborðs.
Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2021.
Engar athugasemdir hafa komið fram við framkvæmd útboðsins.