Vatnsdrykkja – Hitastig, hve salt, hve mikið..
.
Júní 2019
Næringarfræðingur segir mikilvægt að drekka ekki of kalt vatn. Þá sé gott að miða við að drekka átta vatnsglös á dag og halda vatnsdrykkju með mat í lágmarki.
Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur ræddi vatnsdrykkju Íslendinga í þættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þar sagði hún til dæmis mikilvægt að drekka ekki of mikið vatn vegna hættu á að mikilvæg steinefni skolist út úr líkamanum.
„Við þurfum líka að binda vatnið. Það er ekki verra að setja gott salt í vatnið ef við erum að fara í fjallgöngur. […] Bara sjávarsalt, gott sjávarsalt,“ sagði Elísabet.
Sódavatn súrt en verndar gegn matareitrun
Þá benti Elísabet á að kaffi sé vatnslosandi og skoli út góðum steinefnum. Best sé að halda sig við kranavatnið og velja það fram yfir sódavatn, í það minnsta hér á Íslandi.
„Það [sódavatn] er semsagt súr drykkur, því það er búið að sýra hann. Það sem ég myndi ráðleggja fólki að drekka í útlöndum er kolsýrt vatn því það verndar okkur fyrir matareitrunum.“
En hvað á eiginlega að drekka mikið vatn yfir daginn? Elísabet segir það misjafnt eftir einstaklingum, og þar skipti hreyfingarstig höfuðmáli. Átta glös séu samt ágætt viðmið.
„Skynsamlegast er að byrja á þessum hálfum lítra þegar við vöknum til að hjálpa líkamanum að hreinsa út eiturefnin eftir tiltekt næturinnar. Smá með morgunmatnum, eitt glas fyrir hádegi og svo er þetta misjafnt.“
Viðtalið við Elísabetu má hlusta á í heild í spilaranum hér að neðan.