Hreyfigeta vélmennis – Ógnvekjandi?

Heimild: visir

 

Fyrirtækið Boston Dynamics birti myndband af útfærslu vélmennis þeirra sem ber nafnið Atlas. BD er í eigu Alphabet, móðurfyrirtækis Google, og vinnur að þróun vélmenna meðal annars til björgunarstarfa.

Auk þess starfar fyrirtækið með hernaðaryfirvöldum í Bandaríkjunum.

Nýjasta myndband fyrirtækisins er af nýjustu útfærslu vélmennisins Atlas. Óhætt er að segja að vélmennið sýni einstaka hreyfigetu á ójöfnu yfirborði. Þá getur vélmennið staðið upp falli það niður. Auk þess má sjá að vélmennið getur lyft kössum og jafnvel elta þá, séu þeir færðir til.

Eflaust hugsa einhverjir um Skynet þegar þeir horfa á þetta myndband. Við skulum bara vona að vélmennið muni ekki eftir manninum sem hrindir því.

Fleira áhugavert: