Þjóðgarður hálendinu – Nefnd skipuð..
April 2018
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað þverpólítíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka á Alþingi auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga, þeim Valtý Valtýssyni, sveitarstjóra í Bláskógabyggð og Dagbjörtu Jónsdóttur, sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Þá eiga einnig sæti í nefndinni fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu.
Nefndinni er í megindráttum ætlað að skilgreina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslur um skiptingu landsvæða innan hans í verndarflokka. Einnig mun hún fjalla um hugsanlegar aðkomuleiðir, þjónustumiðstöðvar, svæðisskiptingu og rekstrarsvæði, auk þess að greina tækifæri sem stofnun þjóðgarðs kann að fela í sér fyrir byggðaþróun og atvinnulíf. Þá hefur nefndinni verið falið að móta stjórnunar- og verndaráætlanir og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn ásamt lagafrumvarpi, þar sem tekin verður m.a. afstaða til stjórnskipulags þjóðgarðsins.
Nefndin er skipuð eftirtöldum aðilum:
- Óli Halldórsson, formaður, skipaður af umhverfis- og auðlindaráðherra án tilnefningar
- Líneik Anna Sævarsdóttir, tilnefnd af þingflokki Framsóknarflokks
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, tilnefnd af þingflokki Samfylkingar
- Halldóra Mogensen, tilnefnd af þingflokki Pírata
- Bergþór Ólason, tilnefndur af þingflokki Miðflokks
- Ólafur Ísleifsson, tilnefndur af þingflokki Flokks fólksins
- Hanna Katrín Friðriksson, tilnefnd af þingflokki Viðreisnar
- Steingrímur J. Sigfússon, tilnefndur af þingflokki Vinstrihreyfingar – græns framboðs
- Vilhjálmur Árnason, tilnefndur af þingflokki Sjálfstæðisflokks
- Valtýr Valtýsson og Dagbjört Jónsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Margrét Hallgrímsdóttir, tilnefnd af forsætisráðuneyti
Starfsmaður nefndarinnar er Steinar Kaldal, umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Haft verður samráð við helstu hagsmunaaðila og almannasamtök að því er fram kemur í frétt á vef stjórnarráðsins, s.s. í náttúruvernd, útivist, ferðaþjónustu, landbúnaði og orkumálum.