Hreinsistöð Kjalarnesi – Öll íbúðarhverfi Reykjavíkur tengd
September 2017
Gangsetning skólphreinsistöðvar á Kjalarnesi
Veitur gangsettu og prófuðu á hreinsistöð á Kjalarnesi. Rekstur stöðvarinnar er stórt og langþráð framfaraskref í fráveitumálum Kjalnesinga og með henni verða öll íbúðarhverfi Reykjavíkur tengd skólphreinsistöðvum.
Um helmingur íbúahverfisins (austurhlutinn) tengdur frá rotþró og yfir á nýja fráveitukerfið.
Byrjað var á því að tryggja að yfirfall frá hreinsistöðinni virkaði sem skyldi og var því skólp á yfirfalli frá hreinsistöðinni um tíma. Mikilvægt er að tryggja virkni yfirfallanna, því ef þau eru ekki í lagi getur flætt upp í fráveitukerfið hjá notendum. Nú fer skólpið í gegnum hreinsistöðina og hreinsibúnaður keyrður og verður svo alla helgina. Á næstu dögum halda prófanir og stillingar stöðvarinnar áfram og er vonast til þess að hún verði komin í fullan rekstur í kringum mánaðarmótin. Á meðan á því nauðsynlega ferli stendur getur komið upp sú staða að hleypa þurfi skólpi í sjó tímabundið.
Mikið átak hefur verið gert í fráveitumálum á Íslandi síðustu áratugina. Hlutfall íbúa sem er tengt skólphreinsistöð hefur vaxið úr 6% í 84% á aðeins aldarfjórðungi.