Örplast Neysluvatni – Rannsókn Íslandi..

Heimild:  

 

September 2017

Veitur ætla að skoða hvort örplast finnist í neysluvatni á höfuðborgarsvæðinu, eftir nýlega rannsókn sem leiddi í ljós að plastagnir eru að finna í kranavatni víðs vegar um heiminn. Sýnatökur munu hefjast á næstu mánuðum, segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna.

„Við höfum þegar brugðist við. Okkar vísindamenn hafa sett sig í samband við þá sem gerðu rannsóknina úti og við höfum áhuga á að láta skoða vatnið okkar. Við viljum vita hvort það sé að finna plast í vatninu okkar. Þau tóku jákvætt í erindið okkar og við erum með málið í farvegi,“ segir Ólöf.

Um er að ræða rannsókn sem greint var frá á vef Guardian í vikunni, en þar kom fram að plastagnir hafi fundist í 83 prósent þeirra sýna sem tekin voru. Mest var mengunin í vatni í Bandaríkjunum þar sem 94,4 prósent sýnanna voru menguð. Líbanon og Indland komu þar á eftir.

Ástandið var skárra í Evrópu.  Í Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi fannst plastið í um 72 prósent tilfella.  Ólöf segist binda vonir við að fá niðurstöður rannsókna hér á landi hið fyrsta.

„Við viljum vita hvað er í vatninu okkar sem við teljum svo hreint og fínt. Við munum líklega senda þeim sýni víða úr kerfinu; úr krönum hjá fólki í hinum og þessum hverfum eftir aldri vatnsveitunnar, kerfinu okkar sjálfu og úr vatnsbólunum,“ segir hún.

Ekki sé tímabært að lýsa yfir áhyggjum vegna plastagnanna. „Auðvitað er það alltaf áhyggjuefni þegar svona finnst í neysluvatni, en við erum bara forvitin og viljum vita meira áður en við förum að vera mjög áhyggjufull.“

Mest var mengunin í vatni í Bandaríkjunum þar sem 94 prósent sýnana voru menguð.

Mest var mengunin í vatni í Bandaríkjunum þar sem 94 prósent sýnana voru menguð.   VÍSIR/GETTY

Fleira áhugavert: