Vatnsstríð – 1,3 milljarður
Júní 2017
Einkahlutafélagið iGwater hefur stefnt Icelandic Water Holdings (IWH), vatnsátöppunarfyrirtæki Jóns Ólafssonar í Ölfusi, og krefst skaða- og miskabóta upp á 1,3 milljarða króna vegna lögbanns sem lagt var á notkun vörumerkisins Iceland Glacier í árslok 2013.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands í dag en iGwater fer fram á að dómkvaddir matsmenn verði fengnir til að meta meint tjón félagsins. Eldra skaðabótamáli þess gegn IWH var vísað frá dómi í febrúar í fyrra vegna þess hversu vanreifaður málatilbúnaður iGwater var.
„Þessi nýja krafa er auðvitað ekki raunhæf enda fyrirtækið varla starfandi. Þeir segja ósatt um að vatn þeirra komi úr Eyjafjallajökli en mér skilst að það hafi verið tekið í Vestmannaeyjum eftir að því hefur verið dælt í pípu til Eyja. Ég held að þessir menn séu ekki á réttri braut með þetta mál,“ segir Jón Ólafsson, einn eigenda IWH.
Forsaga málsins er sú að IWH fékk í nóvember 2013 lögbann á notkun iGwater, þá Iceland Glacier Wonders, á vörumerkinu Iceland Glacier. iGwater rekur átöppunarverksmiðju í Vestmannaeyjum og framleiðir vatn á flöskum undir vörumerkinu Sno Iceland Glacier Water. Fyrirtæki Jóns í Ölfusi selur vatnið Icelandic Glacial. Jón sagði í fjölmiðlum í desember 2013 að honum þættu vörumerkin of lík og stóð lögbannið þangað til í október 2014.
Rúmu hálfu ári síðar komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að iGwater mætti ekki nota vörumerkið Iceland Glacier í firmaheiti sínu en að því væri heimilt að nota það til markaðssetningar. Stjórnendur félagsins fullyrða að lögbannið hafi spillt lánstrausti og viðskiptahagsmunum og að IWH hafi fylgt því eftir af mikilli hörku og haft samband við erlendar verslanir sem seldu vörur iGwater. Lúðvík Örn Steinarsson, lögmaður félagsins, segir að ný gögn verði lögð fram í skaðabótamálinu fyrir Héraðsdómi Suðurlands.
Framkvæmdastjóri iGwater heitir Natalie Anne Stotter og er dóttir hollenska fjárfestisins Ottos Spork. Otto rak um tíma félagið Iceland Glacier Products ehf. Félagið stefndi að rekstri átöppunarverksmiðju á Rifi á Snæfellsnesi árið 2007 en var tekið til gjaldþrotaskipta fjórum árum síðar. IWH tilkynnti í kjölfarið að það hefði keypt öll vörumerkjaréttindi út úr þrotabúinu en iGwater síðar hafið notkun á þeim án leyfis.