Listastígur á Laugavegsreit – Íbúðir fyrir um 8-10 milljarða
Apríl 2017
Fasteignaþróunarfélagið Rauðsvík hefur hafið uppbyggingu um 160 íbúða á svonefndum Baróns- og Laugavegsreitum í Reykjavík.
Miðað við söluverð nýrra íbúða á svæðinu má ætla að markaðsverðið verði milli 8 og 10 milljarðar króna. Verklok eru áætluð vorið 2019.
Fyrirhugaður hótelturn á Skúlagötu 26 hefur verið hluti af Barónsreitnum. Sturla Geirsson, verkefnisstjóri uppbyggingar á þessum reitum, segir Rauðsvík munu selja frá sér hótelturninn. Nokkrar erlendar hótelkeðjur hafi þegar sýnt því áhuga að hefja þar starfsemi.