Stórhýsi – 11.250m2, 86 íbúðir, verslunarrými
Mars 2017
Á vef Reykjavíkurborgar hefur verið auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðar númer 34-36 við Borgartún.
Þarna á að rísa stórhýsi, alls 11.250 fermetrar með 86 íbúðum og verslunarrými. Lóðin er bak við húsið Borgartún 32. Í því húsi er nú starfrækt Hótel Cabin en fyrir mörgum áratugum var hinn landsfrægi skemmtistaður Klúbburinn með starfsemi sína þar.
Á fyrirhugaðri byggingarlóð hefur ferðaþjónustufyrirtækið Guðmundur Jónasson hf. verið með starfsemi um árabil. Hús sem fyrir eru á lóðinni verða rifin, þar á meðal gamlar verkstæðisbyggingar sem eru í slæmu ástandi. Lóðin hefur verið í niðurníðslu um langa hríð, að því er fram kemur í umfjöllun um byggingaráform þessi