Verndum vatnið
Dagur vatnssins 22.mars
Stærsta ábyrgð sem við hjá Veitum berum er að gæta vatnsbólanna sem okkur er trúað fyrir, nýta þau með sjálfbærum hætti og koma þessari lífsnauðsyn heim í öll hús. Nægt hreint vatn handa öllum, núna og um alla framtíð, er okkar markmið.
22. mars er alþjóðlegur dagur vatnsins. Það er kjörið tilefni til að hugleiða það undur sem vatnið er. UNICEF á Íslandi tekur virkan þátt í alþjóðlegum degi vatnsins.
Vissir þú að 783 milljónir manna um heim allan hafa ekki aðgengi að góðu drykkjarvatni?
Verndun neysluvatns
Neysluvatnið á Íslandi inniheldur lítið af steinefnum miðað við nágrannalönd okkar. Það þýðir að vatnið okkar er einstaklega góður svaladrykkur. Jafnvel sá besti í heimi. En samkvæmt helstu kaffisérfræðingum landsins er íslenska vatnið ekki sérstaklega gott til uppáhellingar vegna skorts á steinefnum. Íslenskir kaffiframleiðendur þurfa að brenna kaffibaunirnar meira en gengur og gerist til að vega upp á móti þessu.
Vatnsbólin sem við sækjum vatnið okkar í eru á vatnsverndarsvæði og það er mjög mikilvægt að þessi svæði mengist ekki t.d. með rusli, olíu, skólpi eða öðrum efnum því þessi efni geta komist í gegnum jarðlögin og í vatnið sem rennur neðanjarðar inn í vatnsbólin.
Vatnsból sem Veitur sækja vatn í eru á höfuðborgarsvæðinu, suður og vesturlandi og eru 13 talsins. Vatninu úr þessum vatnsbólum er dreift til um 45% landsmanna.
Þú getur orðið okkur að liði! Vatnsbólin okkar eru dýrmæt og á ábyrgð okkar allra. Við leggjum áherslu á að fólk gæti varkárni í umgengni við vatnstökusvæði okkar, einkum í Heiðmörk.
Á höfuðborgarsvæðinu eru vatnsbólin okkar í Heiðmörk. Á þessari mynd er hægt að sjá stærð vatnsverndarsvæðisins í Heiðmörk. Eins og sjá má er það mjög umfangsmikið. Við hjá Veitum höfum dálitlar áhyggjur af vaxandi umferð um vatnsverndarsvæðið og sérstaklega því þegar verið er að flytja olíu í miklu magni um Suðurlandsveg sem er í útjaðri vatnsverndarsvæðisins.
Undanfarin ár hafa 97%-100% sýna uppfyllt þær gæðakröfur sem gerðar eru til vatnsins.
Það er mikilvægt að allir sem eiga leið um vatnsverndarsvæði skilji mikilvægi þess að ganga vel um og láti strax vita ef þeir verða varir við eitthvað sem þeir haldi að geti mengað vatnið okkar. Því við viljum eiga hreint vatn fyrir alla í framtíðinni.