Mislæg gatnamót – Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi
Febrúar 2017
Vegagerðin birtir í nýjasta hefti Framkvæmdafrétta, hvernig ný mislæg gatnamót við vegamót Krýsuvíkurvegs og Reykjanesbrautar munu líta út.
Gert er ráð fyrir að hvort sínu megin við Reykjanesbrautina verði hringtorg, eða öllu heldur hringbogar. Þá felur framkvæmdin í sér nokkra rampa, tengingu vð Hvaleyrarhverfið og
Helluhverfið. Að lokum verður reist hljóðmön fyrir norðan Reykjanesbraut í átt að Hvaleyrarhverfi.
Útboðsgögn vegna málsins voru afhent í byrjun mánaðarins og verða tilboð opnuð 21. febrúar. Eins og mbl.is hefur greint frá nemur fjárveiting vegna verkefnisins um 800 milljónum króna og á verkið að vinnast í sumar og ljúka í nóvember á þessu ári.