Salernismál í biðstöðu – Fjórar Skýrslur gerðar
Fjórar skýrslur hafa verið gerðar um ástand salernismála fyrir ferðamenn hjá Stjórnstöð ferðamála. Sú fyrsta kom út í maí í fyrra þar sem ástandið var greint og kom þar fram hvar vantaði salernisaðstöðu um landið og forgangsröðun staða.
Önnur skýrslan kom út í júní en í henni var gerð þarfagreining, forgangsröðun ferðamannastaða var tekin frekar fyrir, fjöldi salerna sem þarf á hverjum stað og kostnaðarmat.
Þriðja skýrslan kom út í nóvember, en í henni er rekstrarform salernanna skoðað. Skýrslurnar þrjár, sem unnar voru af EFLU verkfræðistofu, eiga svo að gagnast við gerð stefnumótandi landsáætlunar sem á að nýta til styrkingar innviða íslenskrar ferðaþjónustu.
Fjórða skýrlan er Samantektarskýrla .