Ylströnd við Urriðavatn Egilsstöðum

Heimild:  

 

Smella á mynd til að stækka

Ylströnd við Urriðavatn, aðeins steinsnar frá Egilsstöðum, verður opnuð árið 2019. Tekist hafa samningar um uppbyggingu og fjármögnun baðstaðarins og er hönnunarvinna í fullum gangi.

Jarðböðin Mývatnssveit ehf. verða stærsti hluthafi ylstrandarinnar, en aðrir hluthafar eru einstaklingar og fyrirtæki á Austurlandi sem í dag eru ellefu talsins. Verkefnið er að fullu fjármagnað og gera áætlanir ráð fyrir heildarfjárfestingu upp á um 500 milljónir, þar af hafa fengist skuldbindandi loforð fyrir um 280 milljón króna hlutafé. Deiliskipulag hefur verið samþykkt auk þess sem samið hefur verið við landeiganda um lóð og rammasamningur gerður við Hitaveitu Egilsstaða og Fella ehf., en aðstaðan verður byggð upp við uppsprettu hitaveitunnar sem er aðeins í fjögurra kílómetra fjarlægð frá alþjóðaflugvellinum á Egilsstöðum og þjónustumiðstöð Austurlands.

Ívar Ingimarsson

Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, segir sveitarstjórn fagna því að verkefnið verði að veruleika. Verkefnið sé mikilvægt fyrir áframhaldandi uppbyggingu Egilsstaða og Austurlands sem áfangastaðar fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn, auk þess sem verkefnið muni örugglega efla mjög atvinnulíf á svæðinu. Þá sé gleðiefni að bæði séu heimamenn stórir hluthafar í verkefninu og að reyndustu og hæfustu rekstraraðilar á sviði heilsuferðaþjónustu komi myndarlega að því.

Hér vísar Björn til þess að í stjórn verkefnisins situr meðal annarra Steingrímur Birgisson sem stjórnarformaður, en hann er forstjóri Bílaleigu Akureyrar og stjórnarformaður Jarðbaðanna í Mývatnssveit. Eins Grímur Sæmundsen, varaformaður stjórnar, en hann er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og forstjóri Bláa lónsins sem er stór eigandi í Jarðböðunum. Hann segist hafa verið mjög áhugasamur um að taka þátt í uppbyggingunni við Urriðavatn sem hafi alla burði til að verða að öflugum segli á Austurlandi. Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, er einnig nýr stjórnarmaður félagsins. Magnús ákvað að taka persónulega þátt í þessu verkefni og segir ástæðu þess þá, að um mjög spennandi verkefni sé að ræða sem geti gert Austurland að enn fjölbreyttari stað til búsetu og heimsóknar.

Ívar Ingimarsson, einn aðstandenda verkefnisins ásamt þeim Hilmari Gunnlaugssyni, lögmanni á Lögmannastofunni Sókn á Egilsstöðum, og Hafliða H. Hafliðasyni, segist mjög spenntur fyrir verkefninu.

„Ég er mjög spenntur fyrir þessari framkvæmd. Ég held að ylströndin eigi eftir að hafa mikið að segja með áframhaldandi vöxt ferðaþjónustu hér á svæðinu – en það hefur lengi vantað segul; stað sem hægt er að ganga að sumar, vetur, vor og haust – sama hvernig viðrar,“ segir Ívar.

Fleira áhugavert: