Reykjavíkurborg – 450 milljónir í ný verkefni

Heimild:  visir

 

Reykjavíkurborg áætlar að verja um fjögur hundruð og fimmtíu milljónum króna í verkefni sem íbúar í hverfum borgarinnar greiddu atkvæði um í rafrænum kosningum sem lauk aðfaranótt fimmtudags. Um er að ræða smærri nýframkvæmdir og ýmis viðhaldsverkefni sem koma til framkvæmda á næsta ári.

Á kjörskrá voru um 99.000 íbúar en af þeim auðkenndu sig rúmlega 9.000 til þátttöku. Þátttakan jókst töluvert frá fyrra ári en 9.4% tóku þátt samanborið við 7.3% árið 2015 þegar fjöldi þátttakenda var tæplega 6500. Kosið var í gegnum vef Reykjavíkurborgar en tillögurnar sem settar voru í kjör voru um 170 verkefni og verða 112 þeirra sett í framkvæmd næsta sumar. Verkefnin eru af ýmsum toga.

„Ég get sagt að það frumlegasta sem hlaut kosningu að mínu mati hefur verið þessi ljóð á gangstéttirnar. Þannig að þegar að það rignir þá birtist ljóð á gangstéttum á Ægissíðunni,“ segir Sonja Wiium, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg

Miðað við niðurstöður kosninganna er borgarbúum umhugað um umhverfi sitt því því í mörgum hverfum var óskað eftir því að fjölga ruslatunnum og laga göngustíga. Til ráðstöfunar eru um 450 milljónir sem er 50% meira fjármagn en á síðasta ári. Fjármunum er skipt milli hverfa eftir reiknireglu sem tekur mið af fjölda íbúa í hverju hverfi. Eitt fjárfrekasta verkefnið verður ný vatnsrennibraut í sundlauginni Grafarvogi.

„Þetta eru bæði nýframkvæmdir og viðhald og skemmtileg afþreying inn í hverfin. Til dæmis eins og heit vaðlaug í Hljómskálagarðinn og svo líka alls konar viðhald og gangstéttar, ný umferðarljós á Ánanaustum og við Lönguhlíð. Allt sem fékk kosningu það fer í framkvæmd næsta sumar og á að vera lokið fyrir árslok 2017,“ segir Sonja.

Fleiri konur tóku þátt í könnuninni eða um 58% og er mynstrið svipað eftir öllum hverfum borgarinnar. Sonja segir að verkefnið sé skemmtilegt og krefjandi og reynslan af því að taka íbúa borgarinnar inn í ákvarðanir af þessu tagi hefur reynst góð.

„Lýðræðið býður upp á samtal mjög margra og við erum að ryðja brautina fyrir önnur sveitarfélög. En auðvitað erum við að hleypa öllum að borðinu og íbúar hafa skoðun á því hvernig hverfin sín eiga að vera og þar af leiðandi er þetta svolítið stórt umstang. Þetta er stór verkefni,“ segir Sonja.

Nánar má kynna sér niðurstöður kosninganna á vef Reykjavíkurborgar.

Fleira áhugavert: