HS Orka – hagnaður 1.278 milljónum jan-júní 2016
Hagnaður HS Orku hf. fyrstu sex mánuði ársins nam 1.278 milljónum en á sama tíma í fyrra var hagnaður af rekstri 142 milljónir. Rekstartekjur námu 3.507 milljónum en þær voru 3.824 milljónir í fyrra. Helsta skýring á lækkun rekstrartekna er lækkun álverðs og minni sala rafmagns til fiskimjölsverksmiðja vegna lakrar loðnuvertíðar.
Þá voru fjármagnsliðir jákvæðir um 874 milljónir en neikvæðir um 1.568 milljónir á sama tímabili í fyrra. Hækkun á virði afleiða, þ.e. framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði, er meginorsök breytingarinnar, en þeir voru jákvæðir um 841 milljón króna á fyrstu sex mánuðum 2016 en lækkuðu um 1.239 milljónir króna á sama tímabili 2015. Áhrif gengisbreytinga voru jákvæð um 150 milljónir en neikvæð um 282 milljónir á sama tímabili 2015.
Heildarhagnaður nam 1.193 milljónum á fyrri helmingi ársins 2016 samanborið við hagnað upp á 75 milljónir á sama tímabili 2015.
Eiginfjárhlutfallið 30. júní 2016 er áfram mjög hátt eða 62,3% en var í árslok 2015 58,6%.