Hveradalir – 8.500 fermetra baðlón, hótel og skíðasvæði (sjá myndir)
Skipulags- og umhverfisnefnd Ölfuss hefur heimilað að mikil uppbygging sem áætluð er við Skíðaskálann í Hveradölum fari áfram í lögboðið ferli.
Fram kemur í fundargerð nefndarinnar að byggt verði allt að 210 herbergja hótel og að gert verði 8.500 fermetra baðlón í botni Stóradals ásamt baðhúsi sem verður sambyggt hótelinu.
„Fyrirhugað er að nýta heitt affallsvatn sem fellur frá Hellisheiðarvirkjun sem er skiljuvatn eða úrgangsvatn sem verður endurnýtt fyrir starfsemina,“ segir um baðlónið.
Þá er sagt fyrirhugað að setja upp skíðalyftu á sama svæði og gamla lyftan var á í Hveradölum og byggja aðstöðuhús við skíðabrekkuna. Byggja eigi gróðurhús sunnan við skíðaaðstöðuna. „Gróðurhús eða þjónustuhús gæti verið um 1.000 fermetrar með fjölbreytni í ræktunarmöguleikum og verslun og veitingar.“
Áætlað er að aðalbygging hótelsins verði þrjár hæðir með um 180 herbergjum og síðan verði annað hús með um 30 herbergjum.
„Nánast öll uppbyggingin er á röskuðu svæði sem hefur verið útivistarsvæði,“ segir skipulags- og umhverfisnefnd Ölfuss.