Vatn frá Bandaríkjunum selt á Íslandi – Ódýrara en frá íslenskum framleiðendum
eftir
Vatnsidnadur
·
september 10, 2016
Heimild:
Það er ódýrara að flytja inn vatn erlendis frá og selja í verslunum heldur en að kaupa vatn frá íslenskum framleiðendum. Þetta segir Stefán Guðjónsson, forstöðumaður innkaupasviðs Samkaupa. Fyrirtækið fékk sendan gám með vatni frá Bandaríkjunum fyrir slysni.
Tónskáldið Örlygur Smári vakti athygli á því á Facebook að vatn væri flutt inn erlendis frá og selt í verslunum hér á landi.
Stefán segir það ekki hafa verið ætlunina að panta vatn, það hafi komið fyrir slysni í stað annarrar vöru. „Þess vegna er það líka selt í einni verslun, sem sagt Selfossi, því magnið var lítið,“ segir Stefán í svari við fyrirspurn fréttastofu.
Hann bendir á að vatnið sé ódýrara en það sem hægt er að kaupa af íslenskum framleiðendum þó það sé búið að flytja það yfir Atlantshafið, greiða af því toll og flytja það austur.
Poland vatnið er framleitt í Maine Bandaríkjunum – Smella á myndir til að stækka
Tags: Sala á vatniVatnsframleiðendurVatnsframleiðsla
Fleira áhugavert: