Reykholt í Biskupstungum – bygging fjölda orlofshúsa
Á næstunni hefjast framkvæmdir á vegum Eflingar – stéttarfélags við byggingu 12 orlofshúsa við Reykholt í Biskupstungum.
Þar á félagið landspildu sem Verkamannafélagið Dagsbrún, sem síðan sameinaðist öðrum félögum í Eflingu, keypti árið 1944.
„Þetta er eitthvert best staðsetta og fallegasta svæði sem völ er á í dag,“ segir Sveinn Ingvarsson hjá Eflingu í umfjöllun um áform þessi í Morgunblaðinu.
Heimild: Mbl