Náttúruperlan Jökulsárlón – Til sölu ?
Sýslumaðurinn á Suðurlandi tilkynnti í morgun ákvörðun sína um að setja jörðina Fell, sem meðal annars á um helming Jökulsárlóns, á sölu á almennum markaði. Enn á þá eftir að ákveða utanumhald á þeirri framkvæmd en hún verður kynnt á næstu vikum. Þetta staðfestir Anna Birna Þráinsdóttir, sýslumaður á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
Anna segir að þetta verði niðurstaða málsins nema ákvörðun embættisins verði beint til dómstóla. Segir hún að boðað verði til fundar milli landeigenda og sýslumanns á næstunni til að fara yfir stöðuna. Segir hún ákvörðun um framkvæmdina tekna á næstu vikum. „Þetta er ekki mánaðarspursmál,“ segir Anna.
Í morgun fór fram annað stig nauðungarsölu og var ákvörðunin kynnt þar.Þann 10. mars sl. féllst sýslumaðurinn á beiðni um nauðungarsölu til slita á sameign á jörðinni Fell í Austur-Skaftafellssýslu. Jörðin er alls 10.528 hektarar og eru landeigendur, sem eiga jörðina í sameiningu, um 40 talsins. Rekja má þennan mikla fjölda til óskipts dánarbús. Jörðinni tilheyrir jafnframt um helmingur Jökulsárlóns til móts við íslenska ríkið.
Heimild: Mbl