Hver íslendingur notar um 200 lítra af vatni á dag – öruggasta framboð af ferskvatni í heimi
Smella á mynd til að sjá myndband/frétt
Ísland er auðugt af hreinu vatni. Við notum vatn inni á heimilum, við atvinnustarfsemi, svo sem landbúnað, fiskiðnað og ræktun og síðast en ekki síst notum við vatnið til rafmagnsframleiðslu. Vatnsnotkunin samsvarar því að hver íbúi noti 200 lítra á dag.
Og víst er að landsmenn hafa aðgang að miklu vatni. Hver Íslendingur hefur aðgang að liðlega 530 þúsund rúmmetrum af ferskvatni. Í Noregi er vatnsforðinn um 80 þúsund rúmmetrar á íbúa og í Danmörku þrjú þúsund rúmmetrar. Vatnsnotkun hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum hér á landi.
Smella á mynd til að stækka
Heimild: RÚV