Höfðaturninn 20.hæðin – Lúxushótel með átta svítum á 800 fermetrum ..myndir
Fjárfestar undirbúa opnun lúxushótels á 20. og efstu hæðinni í turninum á Höfðatorgi í Reykjavík. Það mun heita Tower Suites Reykjavík og er stefnt að opnun í byrjun júní.
Sami hópur er að baki verkefninu og rekur Keiluhöllina. Hann er samsettur af Múlakaffisfjölskyldunni, með Jóhannes Stefánsson, eiganda Múlakaffis, í broddi fylkingar, og af Jóhannesi Ásbjörnssyni og Sigmari Vilhjálmssyni, stofnendum Hamborgarafabrikkunnar, og Snorra Marteinssyni, starfandi framkvæmdastjóra fabrikkunnar.
Tuttugasta og efsta hæðin er rúmlega 800 fermetrar. Þar er verið að innrétta átta svítur, fjórar hornsvítur og fjórar minni á milli þeirra. Svíturnar eru 44-65 fermetrar.
Á miðri hæðinni er lyftugangur og fyrir framan hann verður setustofa þar sem boðið verður upp á morgunverð, áfenga drykki og léttar veitingar. Teikning af setustofunni er sýnd hér á síðunni. Móttaka verður á hæðinni.
Hefur hvergi séð svona útsýni
Jóhannes Stefánsson, eigandi Múlakaffis, segir þetta einstakt húsnæði fyrir lúxushótel í Reykjavík.
„Þetta er einstakt að því leyti að þetta er síðasta húsið sem verður byggt svona hátt. Það er enda komið bann á fleiri háhýsi í Reykjavík.
Ég er búinn að fara víða um heim, hef ferðast víða og gist á hótelum. Ég hef hvergi komið á hótel þar sem hægt er að vera með heila svona hæð með 360 gráðu útsýni. Öll herbergin nema eitt munu hafa frístandandi baðkar. Frá hverju baðherbergi verður útsýni yfir borgina, eða yfir fjöllin. Það er líka einstakt. Við erum að ræða um fimm stjörnu gistingu,“ segir Jóhannes
Hann segir hótelið verða í sama gæðaflokki og gistinguna sem hann rekur í Úthlíð í Biskupstungum. „Við erum að stíla á lúxus. Þetta er sami markhópurinn.“
Spurður hvernig hann ætli að sækja viðskiptavini segir Jóhannes að ferðaskrifstofur og kúnnarnir sjálfir muni getað pantað gistingu. Hótelið verði auðfundið á netinu.
Nafni hans, Jóhannes Ásbjörnsson, segir þá félaga hafa leitað til Ásgeirs Ásgeirssonar hjá Tark arkitektum um hönnun hótelsins
Útsýnið er sölupuntur
Jóhannes segir boltann hafa farið að rúlla snemma í haust. Verkefnið eigi sér því ekki langan aðdraganda.
Hann segir starfsmenn hótelsins munu kynna það fyrir gestum sem fyrir augu ber frá 20. hæðinni. Hvert herbergi muni heita eftir fjalli á fjallahringnum. Meðal þeirra verði Vfilfell, Akrafjall, Hengill, Keilir, Esjan og Snæfellsjökull. Hægt verði að tengja herbergin með því að opna á milli þeirra. Þannig geti gestir leigt fleiri en eitt herbergi og jafnvel alla hæðina ef svo ber undir.
Hann segir aðspurður að svíturnar verði verðlagðar á 150-250 þúsund krónur nóttin, eftir stærð.
Tveir starfsmenn verða með fasta viðveru á hótelinu allan sólarhringinn. Annar sem starfsmaður í móttöku en hinn sem concierge, eða hótelþjónn, fyrir gesti. Tekið er á móti gestum í bílakjallaranum.
Heimild: Mbl