Ný Vogabyggð – milli 1.100 og 1.300 íbúðir
Skrifað var undir samninga um endurbyggingu Vogabyggðar í Reykjavík fyrr í dag. Hverfið afmarkast af Sæbraut, Kleppsmýrarvegi og Súðarvogi.
Á vef Reykjavíkurborgar segir að samningarnir nái til hluta Vogabyggðar, svæðis 2, en stærstu lóðarhafar þar eru Gámakó og Vogabyggð dótturfyrirtæki Hamla, sem eru í eigu Landsbankans. Samtals ráða þessi fyrirtæki yfir 70 prósent lóða á svæði 2.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir samningana afar mikilvægt skref í átt að uppbyggingu hverfisins. „Það er mjög metnaðarfullt skipulag sem liggur fyrir og Vogabyggðin sjálf er náttúrlega á besta stað í borginni. Fjórðungur íbúðanna sem þarna rísa verða undir leigu- og búseturéttaríbúðir og höfum við nú samið við lóðarhafa um þátttöku í uppbyggingu innviða. Verkefnið í heild er svo eitt af lykilsvæðum í Aðalskipulagi Reykjavíkur þannig að ég er mjög spenntur fyrir þessu,“ segir Dagur.
Í tilkynningunni segir að miðað við þær skipulagsáætlanir sem nú sé unnið að sé gert ráð fyrir að í hverfinu verði 1.100 til 1.300 íbúðir og atvinnuhúsnæði um 56.000 fermetrar. „Gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir 450 íbúðum og því er ljóst er að þessi fjölgun íbúða í hverfinu kallar á byggingu grunn- og leikskóla, en miðað er við að ráðist verði í þær framkvæmdir í samræmi við uppbyggingu íbúðabyggðar. Í samningum er kvöð um að leiguíbúðir, stúdenta- og búseturéttaríbúðir verði 20–25% íbúða.
Í Vogabyggð eru áformaðar framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar og Orkuveitu Reykjavíkur við gerð gatna, torga, stíga, strandstíga, landfyllinga, grjótvarna og nýrra stofnlagna, útsýnis- og göngupalla í samræmi við hugmynd að nýju deiliskipulagi. Auk þess er gert ráð fyrir göngubrú og stíflu við Háubakkatjörn, brú yfir Naustavog, færslu á Kleppsmýrarvegi og færslu skólpdælustöðvar. Áætlaður kostnaður Reykjavíkurborgar við uppbyggingu skóla og allra innviða í hverfinu er um 8 milljarðar króna.“
Ánægjulegt að skapa nýja framtíð
Gunnar Bragason, framkvæmdastjóri Gámakó og Gámaþjónustunnar, segir það vera fagnaðarefni að sjá glæsilega íbúðabyggð rísa á gömlu og lúnu iðnaðarsvæði. „Við höfum lengi beðið eftir þessu.“
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, tekur í sama streng og segir þetta vera gríðarlega mikilvægan áfanga og ánægjulegt fyrir Landsbankann að taka þátt í einum umfangsmestu endurbyggingaráformum í Reykjavík í langan tíma. „Við höfum unnið með borginni í þessu verkefni frá ársbyrjun 2013 og það er ánægjulegt að taka þátt í að skapa nýja framtíð hér á svæðinu.“
Heimild: Vísir + Reykjavíkurborg