Etna Sikiley – Hæðsta og virkasta eldfjall Evrópu gýs (áhugaverðar myndir)
Etna á Sikiley tók að gjósa. Reykmökkur steig upp í nokkurra kílómetra hæð og hefur það haft áhrif á flugsamgöngur á svæðinu.
Þannig var Calabria flugvellinum á Suður-Ítalíu lokað í kjölfar gossins en um 1.2 milljónir manna fara um völlin árlega.
Síðast gaus úr Etnu fyrir um tveimur árum síðan en nú gaus úr Voragine-gígnum. Hræringar í fjallinu hófust fyrir um mánuði síðan og talið er að þær megi rekja til sprengingar undir gígnum sem þó náði ekki til yfirborðsins – fyrr en í dag.
Gosagnir hafa dreifst um mörg hundruð ferkílómetra svæði umhverfis fjallið og hafa íbúar sikileysku borganna Messina og Reggio Calabria ekki farið varhluta af þeim. Öskufallið hefur torveldað samgöngur í borginni og voru bifhjólamenn sérstaklega varaðir við að vera á ferli.
Etna er eitt virkasta eldfjall Evrópu og hefur reglulega látið á sér kræla. Iðullega er um mikið sjónarspil að ræða eins og meðfylgjandi myndir og myndskeið bera með sér.
Heimild: Vísir