Vatnsréttindi við Sogið og jarðhitahlunnindum Nesjavalla í mat
Grímsness- og Grafningshreppur vill að Þjóðskrá meti vatnsréttindi við og Þingvallavatn til fasteignamats vegna virkjana við Steingrímsstöð, Írafoss og Ljósafoss. Einnig verður farið fram á endurmat á jarðhitahlunnindum Nesjavalla.
Hæstaréttardómur var kveðinn upp í október þess efnis að vatnsréttindi sem heyra til Kárahnjúkavirkjunar megi meta í fasteignamat. Þar með skapast nýr tekjustofn fyrir Fljótsdalshérað sem innheimt getur fasteignagjöld af Landsvirkjun vegna vatnsréttindanna.
Heimild: Vísir