Rannsóknarboranir í Eldvörpum
HS Orka hefur fengið leyfi bæjarstjórnar Grindavíkur til að hefja rannsóknarboranir í Eldvörpum.
Að því er segir í fundargerð bæjarstjórnar er tilgangur rannsóknarborananna meðal annars að auka við þekkingu á umfangi, eðli og innri gerð jarðhitasvæðisins, meta tengsl við næstliggjandi jarðhitakerfi í Svartsengi og skera úr um hæfi svæðisins til virkjunar.
„Rannsóknarholurnar í Eldvörpum verða þeirrar gerðar að þær geti nýst síðar sem vinnsluholur ef til virkjunar kemur. Mannvirkjagerð felst í uppbyggingu borplana, lagningu tengivega frá vegslóðum að borplönum og styrkingu tiltekinna vegslóða sem liggja um svæðið,“ segir nánar um málið.
Heimild: Vísir