Uppsetning stoðvirkja í Hafnarhyrnu yfir byggðinni í Siglufirði (Ótrúlegar aðstæður)
Framkvæmdum við 2. áfanga á uppsetningu upptakastoðvirkja yfir byggðinni í Siglufirði er nú að ljúka.
Vinna við áfangann hófst vorið 2013 og var verkið unnið á þremur sumrum, 2013-2015.
Verktaki við uppsetningu stoðvirkjanna er ÍAV, efni í stoðvirkjagrindurnar er frá Mair Wilfred GmbH.
Framkvæmdakostnaður uppsetningu er um 440 milljónir króna og efniskostnaður er um 220 milljónir.
Síðasta stoðvirkjagrindin var hífð upp í fjallið 25. ágúst síðast liðinn.
Vinnu við samtengingu grinda og annan frágang lýkur í september
Heimild: FSR