World Class í Breiðholti
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og hjónin Hafdís Jónsdóttir og Björn Leifsson, eigendur World Class, hafa tekið fyrstu skóflustunguna að nýrri líkamsræktarstöð við Breiðholtslaug.
Líkamsræktarstöðin mun rísa sunnan sundlaugarinnar og gerður verður tengigangur meðfram íþróttahúsi til að samnýta afgreiðslu, búningsklefa og sturtur með sundlauginni. Gestir stöðvarinnar fá einnig aðgang að lauginni en slíkt er einnig nú þegar í boði fyrir þá viðskiptavini sem æfa í World Class í Laugum, á Seltjarnarnesi og í Mosfellsbæ. Deiliskipulag hefur verið samþykkt og heimilaði það aukinn byggingarétt að 1.700 fermetrum, en líkamsræktaraðstaðan er hönnuð af Úti og Inni arkitektum og Ara Má Lúðvíkssyni arkitekt „Við erum mjög ánægð með að geta nú hafist handa svo að Breiðhyltingar komist í ræktina í sínu hverfi sem fyrst. Það er heiður fyrir okkur hjá World Class að vinna að þessu verkefni með borginni og við ætlum auðvitað að gera þetta vel“ sagði Björn Leifsson.
Heimild: Reykjavíkurborg