Marriott reisir fimm stjörnu hótel við Hörpu – 16 milljarða fjárfesting

visir

Hér má sjá sjónvarpsfrétt um málið

Marriott reisir fimm stjörnu hótel við Hörpu

 

Borgarstjóri segir löngu tímabært að byggt sé í holunni framan við Hörpu og telur að fimm stjörnu hótel Marriott hótelkeðjunnar muni efla ferðaþjónustuna í Reykjavík. Aðstoðarforstjóri Marriott segir staðsetninguna einstaka og á heimsmælikvarða. Árum saman hefur verið reynt að ná samningum við erlend hótelfyrirtæki um byggingu fimm stjörnu hótels á lóðinni framan við Hörpu til að styrkja ráðstefnuhald og aðra starfsemi í húsinu. Fjöldi viljayfirlýsinga hefur verið undirritaður en aldrei áður hefur verið skrifað undir formlega samninga eins og nú. Bandaríska fjárfestingafyrirtækið Carpenter og Co sem m.a. sérhæfir sig í byggingu hótela í samstarfi við nokkrar stærstu hótelkeðjur heims sér um fjármögnun byggingarinnar í samstarfi við Arion banka.  Ásgeir Ásgeirsson arkitekt hjá Tark mun teikna bygginguna í samstarfi við Cambridge 7 arkitektastofuna í Bandaríkjunum.

Teikningar klárar á haustmánuðum

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að teikningar eigi að liggja fyrir á haustmánuðum og framkvæmdir hefjist upp úr áramótum. Það sé löngu tímabært að fylla upp í holuna við Hörpu. „Það er auðvitað mikilvægt á margan hátt. Í fyrsta lagi er þetta stór fjárfesting (16 milljarðar). Það er löngu tímabært að fylla í holuna eins og þú segir. En þetta er líka ný vídd í ferðaþjónustuna. Þetta markaðssetur sig gagnvart betur borgandi ferðamönnum. Svo held ég að það sé mjög spennandi að þarna er stefnan ekki sett á að vera með lúxushótel bara fyrir einhverja ríka gesti, heldur lifandi hótel sem opnar sig fyrir borgarbúa. Er með lifandi dagskrá út í gegn og verður hluti að borgarlífinu en ekki út af fyrir sig,“ segir Dagur. Þetta muni breikka framboðið í miðborginni sem sé nú þegar mjög skemmtileg og styðja við annan hótelrekstur og ferðaþjónustu í borginni. Hótelið mun heita Marriott Edition Reykjavík en Edition er nýtt vörumerki fimm stjörnu hótela Marriott hótelkeðjunnar og hafa einungis fjögur slík hótel verið opnuð hingað til, en Marriott rekur fjögur þúsund hótel víðs vegar um heiminn.

Verður eitt besta hótel í heimi

Sandeep Walia

Sandeep Walia aðstoðarforstjóri Marriott Edition í Evrópu er mjög spenntur fyrir möguleikunum í Reykjavík og segir að innan nokkurra ára rísi 250 herbergja gæðahótel upp úr holunni við Hörpu „Þetta verður án efa eitt besta hótel í heimi. Staðsetningin er stórkostleg með útsýni yfir höfnina og Faxablóa við hliðina á Hörpu. Samvinna hótelsins og ráðstefnumiðstöðvarinnar í Hörpu getur reynst mjög vel. Hugsanlega mun hótel af þessari gerð draga stærri ráðstefnur að Hörpu,“ segir Sandeep Walia.

 

Heimild: Vísir

 

 

 

Fleira áhugavert:

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *