Framtíðaruppbyggingu flutningskerfis raforku í landinu næstu 10 árin
Stefán Gunnar Thors umhverfishagfræðingur og sviðsstjóri hjá VSÓ var hjá í Bítinu Bylgjunni.
Ágúst 2015
Í síðustu viku var rammaáætlun um flutningskerfi Landsnet kynnt en þar er gerð grein fyrir framtíðaruppbyggingu flutningskerfis raforku í landinu næstu 10 árin. Hluti af þessu plaggi er umhverfisskýrsla sem VSÓ ráðgjöf vann í samstarfi við Landsnet en í henni eru m.a. bornir saman þeir tveir meginvalkostir sem taldir eru koma til greina í styrkingu flutningskerfis raforku, annars vegar lína yfir hálendið og hins vegar byggðaleið sem er styrking og uppbygging hringtengingarinnar um landið. Hvor leiðin sem farin verður er ljóst að þarna eru á ferðinni umfangsmiklar framkvæmdir, sem munu óhjákvæmilega valda neikvæðum umhverfisáhrifum.
Heimild: Vísir